Kirkjugarður

Hveragerðisprestakall

 

Kirkjugarður

Forsíða Helgihald Safnaðarstarf Annað Kirkjur Nefndir Kirkjukór Sálmar Viðburðir

Kirkjugarðurinn á Kotströnd þjónar efri hluta sveitarfélagsins Ölfuss og Hveragerði.   Hvergerðingar sóttu Kotstrandarkirkju þar til þeirra kirkja var tilbúin.  Garðurinn, sem markar kirkjugarðinn á tvo vegu er prýðilega vel hlaðinn og skoðunarverður.

Stækkun garðsins

Hinn 21. apríl 2009 tók Eyrún Rannveig Þorláksdóttir fyrstu skóflustungu að stækkun kirkjugarðsins á Kotströnd og hófust framkvædmir daginn eftir hinn 22. apríl. Viðbótarland garðsins er vestan við bílastæði kirkjunnar gegnt kirkjudyrum og er um einn hektari að stærð.  Fríða Björk Eðvarðsdóttir, landslagsarkitekt, skipulagði og hannaði stækkunina og Sigurður Jakobsson, tæknifræðingur, sá um tækniskipulag.  Verkið var boðið út og tekið var tilboði Ræktunarmiðstöðvarinnar s/f. Stefnt er að því að ljúka verkinu í sumar og að þessi nýji hluti garðsins verði tiltækur til greftrunar í haust, en hinn 16. október verður liðin öld frá því fyrst var jarðsett í Kotstrandarkirkjugarði.

Mynd:  Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eyrún R. Þorláksdóttir tekur fyrstu skóflustunguna að stækkun Kotstrandarkirkjugarðs, 21. apríl 2009. Viðstödd frá vinstri: Jón Ragnarsson, sóknarprestur, Pálína Snorradóttir, Helga Baldursdóttir, Helga Haraldsdóttir, Egill Gústafsson, Eyjólfur Kolbeins, Garðar Hannesson og Birgir Þórðarson.

Mynd:  Magnús Hlynur Hreiðarsson
Frá Vinstri:  Jón Ragnarsson, sóknarprestur, Pálína Snorradóttir, Helga Baldursdóttir, Helga Haraldsdóttir, Eyrún R. Þorláksdóttir, Egill Gústafsson, Eyjólfur Kolbeins, Garðar Hannesson og Birgir Þórðarson.


Upplýsingaskilti í Kotstrandarkirkjugarði

Hinn 8. ágúst 2007 færðu frú Hrefna Guðmundsdóttir og synir hennar Kotstrandarkirkjugarði upplýsingaskilti að gjöf til minningar um Sigurð Gísla Guðjónsson, sem fæddur var. 21 nóvember 1924 og lést 8. ágúst 1995.

Skiltin eru tvö. Annars vegar yfirlitskort yfir garðinn og tölusetningu legstaða og hins vegar skrá yfir nöfn þeirra, sem í garðinum hvíla, með tilvísun til uppdáttarins.

Skiltin hafa verið sett upp á suðurvegg þjónustuhússins þar sem þau eru almenningi aðgengileg og auðvelda gestum mjög að finna leiði í garðinum.

Nanfaskráin tilgreinir legstarðarnúmer, fæðingar og dánardægur. Í örfáum tilvikum hefur ekki tekist að afla þeirra upplýsinga og væri vel þegið af umsjónarmönnum garðsins, ef einhver byggi yfir slíkri vitneskju og kæmi henni á framfæri.

Kirkjugarðar eru almenningseign og mikilvægt að þeir séu í góðri hirðu og öllum aðgengilegir. Það er menningaratriði og ætti að vera kappsmál í hverju samfélagi að saga þeirra og aðrar upplýsingar séu tiltækar án sérstakrar fyrirhafnar.

Hrefna og synir ásamt sóknarpresti