Hveragerðis og Kotstrandarkirkja

Hveragerðisprestakall

 

Kirkjur

Forsíða Helgihald Safnaðarstarf Á döfinni Nefndir Kirkjugarður Kirkjukór Sálmar Viðburðir
Hveragerðiskirkja

Kotstrandarkirkja

Hveragerðiskirkja stendur á Sandhóli og gnæfir tignarleg yfir bæinn. Jörundur Pálsson arkitekt við embætti Húsameistara ríkisins teiknaði kirjuna. Bygging hennar hófst í júlí 1967 og byggingameistari var Jón Guðmundsson í Hveragerði. Heildargólfflötur er 460 m2 og mesta lofthæð er 14 m.
31. maí 1971 var safnaðarheimili vígt af Sigurbirni Einarssyni, biskupi Íslands og þann 14. maí 1972 var kirkjan sjálf vígð af Sigurði Pálssyni vígslubiskupi. Skírnarfonturinn er stuðlabergssúla. Steindur kórgluggi er verk Höllu Haraldsdóttur, glerlistakonu. Stílfærð Kristsmynd er uppistaðan myndarinnar, en litir og form vísa til jarðhita, gufu, blóma og gróanda umhverfisins. Efst tákna stjarna og kross birtu vonar og hinn helga kross, og að Hveragerði er á krossgötum í þjóðbraut. Halla gerði einnig glugga í safnaðarsal.
Krossaumað veggteppi er gert eftir frummynd í Þjóðmynjasafni og sýnir atburði úr Mósebókum. Ofin veggteppi í safnaðarsal eru gjöf frá vinabæ Hveragerðis, Tarp í Slésvík í Þýskalandi.
Bænaljósastjaki og tveir sex ljósa stjakar í kór eru minningargjafir. Gunnsteinn Gíslason, myndlistarmaður hefur hannað alla stjakana.
Pípuorgelið er ítalskt, af Mascionigerð, 17 raddir.

Sunnan við kirkjuna er gott útsýni yfir Hverasvæðið í hjarta bæjarins. Kirkjan er tilvalinn staður til að skoða og upplifa í leiðinni þann frið og kærleik sem ætíð geislar frá guðshúsum.

Nokkrar myndir í og af kirkjunni
Kotstrandarkirkja er í Hveragerðisprestakalli í Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1909 og vígð 14. nóvember sama ár. Hún er úr járnklæddu timbri, um 85 m² og tekur 200 manns í sæti. Samúel Jónsson frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður.

Gamla altaristaflan er úr Reykjakirkju og Örlygur Sigurðsson málaði málverkið af séra Ólafi Magnússyni.

Kotstrandarkirkja var hönnuðuð af Rögnvaldi Ólafssyni, arkitekt. Hún var friðuð 1. janúar 1990, samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

Kirkjugarðurinn á Kotströnd þjónar einnig Hveragerði. Hvergerðingar sóttu Kotstrandarkirkju þar til þeirra kirkja var tilbúin. Garðurinn, sem markar kirkjugarðinn á tvo vegu er prýðilega vel hlaðinn og skoðunarverður.

Árið 1909 var ákveðið að leggja niður kirkjurnar að Arnarbæli og Reykjum og leggja sóknirnar til Kotstrandar. Séra Ólafur Magnússon sat í Arnarbæli 1903 - 1940 og var síðasti prestur þar. Hann þjónaði Kotströnd, Hjalla og Strönd í Selvogi en að honum látnum hafa prestar setið í Hveragerði og Kotstrandarkirkja varð að útkirkju þaðan.

Í katólskum sið var kirkjan í Arnarbæli helguð heilögum Nikulási og útkirkjur voru að Hjalla og á Reykjum.