|
|
|
|
| Forsíða | Helgihald | Á döfinni | Kirkjur | Nefndir | Kirkjugarður | Kirkjukórinn | Sálmar | Viðburðir |
| Barna- og Æskulýðsstarf Myndir: Haust 2007 |
Barnastarf (sunnudagaskóli) Sunnudagaskólinn er kl. 11:00 - alla sunnudaga frá því í september fram að páskum. Umsjón ásamt sóknarpresti hafa í vetur: Stefanía Inga Sigurjónsdóttir, GSM 6626262, sis_@visir.is. Barnakór er með æfingar á miðvikudögum kl 16.30. Æskulýðsstarf: Samstarfsverkefni Hveragerðisprestakalls og KFUM/KFUK Starfið fer að mestu fram í Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju. Starfið fer fram í tveimur deildum yngi deild og unglingadeild |
| Foreldramorgnar |
Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Hveragerðiskrikju eru á þriðjudögum kl. 10:00. Foreldramorgnar eru fremur óformlegar samverur fyrir foreldra ungbarna. Foreldrar, einkum mæður, ungbarna eru oft frekar einangraðir heimavið því „Bundinn er sá/sú er barnsins gætir„ og eldri börn og makar eru utan heimilis góðan part úr deginum vegna skóla og vinnu. Kirkjan vill koma til móts við foreldra ungbarna og veita þeim tækifæri til að koma og eiga morgunstund með öðru fólki sem er að sinna ungbörnum heimavið. Reynslan sýnir þessar samverur miðla mikilvægum stuðningi og fróðleik til þátttakenda auk félagsskaparins í kringum barnauppeldið. Fræðsludagskrá er skipulögð í samráði við þátttakendur. ![]() Foreldramorgnarnir hafa verið starfandi frá haustinu 2001 og verið vel sóttir. Yfirleitt hafa komið saman 7 – 9 mæður með heldur fleiri börn og átt saman morgunstund. Gestir hafa komið nokkuð reglulega og spjallað og frætt um ýmis málefni sem tengjast ungbarnauppeldi og fjölskyldumálum. Dagskrá er annars óformleg og byggjast stundirnar fyrst og fremst á þátttakendum sjálfum. Foreldramorgnar eru tækifæri fyrir foreldra sem eru einir heima með ungbörn til meðan annað heimilisfólk er í vinnu eða skólum. Foreldramorgnar hjálpa til við að rjúfa eiangrun sem foreldrar, einkum mæður, með ung börn finna oft fyrir. Feður mættu gjarnan láta sjá sig meira á þessum morgnustundum, ekki síst ef þeir eru heimavið í fæðingarorlofi. |
|
Fermingarfræðsla Myndir: Haust 2007 Myndir frá 2005-2006 Fermingar vorið 2011 Fermingar vorið 2010 Fermingar vorið 2009 Fermingar vorið 2008 Fermingar vorið 2007 Fermingar vorið 2006 Fermingar vorið 2005 Fermingar vorið 2004 |
Fermingarfræsðla er á þriðjudögum kl. 13:30, 14:30 og 15:30 og á miðvikudögum kl. 15:00. Fermingarbörn safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Söfnun fermingarbarnanna 7. nóvember 2005 gekk vel. Börnin sem tóku þátt voru 31 og söfnuðust kr. 83.171 sem renna til þarfra verkefna á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Þeim var allstaðar vel tekið og höfðu ánægju af þessu viðfangsefni, auk þess sem það var lærdómsríkt. Hjálparstarf kirkjunnar vill koma á framfæri þökkum til allra, sem lögðu fé í söfnunina og sýndu fermingarbörnunum áhuga og skilning. Eftir söfnunina þáði söfnunarfólkið veitingar á Pizza Hveragerði og horfði á kvikmyndina “Bruce Allmighty” i boði Hveragerðissóknar. Hjálparstarf kirkjunnar hefur greint frá því að endanleg upphæð söfnunar fermingarbarna á landinu öllu hafi numið Kr. 6.600.000 - Sex milljónum og sexhundruð þúsundundum. Hjálparstarf kirkjunnar er í nánu samstarfi við hjálparstarf dönsku og norsku þjóðkirknanna, sem eru mjög öflugar stofnanir með langa og mikla reynslu af neyðarhjáp og þróunaraðstoð. Þessar stofnanir vinna náið með heimafólki og þiggjendum aðstoaðrinnar á hverjum stað. Þær njóta mikls trausts fyrir skilvirkni og áreiðanleika, sem tryggir að söfnunarféð skilar sér í þau verkefni sem koma sér best fyrir fólkið á hverjum stað. Sóknarprestur ![]() Hirut Beyene,Kusse Koshoso og Bjarni Gíslason fræddu fermingarbörnin um hjálparstarf og kristniboð í Konsó í Eþíópíu. |