|
|
Píanóið er að mestu leyti úr timbri.
|
Fastar
nótur
Alveg eins og
hurðir og skúffur þrútna og festast þegar rakastig verður
of hátt og skröltir laust þegar loftið er of þurt ,
gildir það sama um píanó. Nóturnar fara að festast og
verða "latar" við of hátt rakastig og á hinn veginn
verður nótnaborðið losaralegt og skröltandi þegar loftið
er of þurrt. |
Stíft
hamraverk
Þegar þú styður á nótu á hljómborðinu
fara margir litlir tréhlutir á hreyfingu. Þeir eru allir
hluti af spilverkinu sem þarf að vera leikandi og liðugt
svo að áslátturinn verði góður. Við of hátt rakastig
stífnar hamraverkið upp og á hinn veginn sem er algengara
hér á landi þornar það við af lágt rakastig sem leiðir
til þess að skrúfur losna og fóðringar rýrna sem veldur
skrölti og t.d. að hamrar slá skakkt á strengi ofl. |
Áhrif á hljómbotn og strengjastiga
|
| Hljómbotninn er stærsti
einstaki viðarhluturinn í hljóðfærinu og ofan á honum
er stigi sem tengir strengina við hljómbotnin. |
Of
rakt !
Við of hátt rakastig þrútnar viðurinn í hljómbotninum
og þar sem hanner límdur á alla kanta getur hann bara
hreyfst upp eða niður. Við raka , lyftist hljómbotninn
og þrýstir á strengina sem hækka við það í tónhæð
og hljóðfærið verður mjög falskt vegna þess að mesta
hækkunin á hljómbotninum verðu í miðjunni , en ekki
jafnt yfir allt tónsviðið. |
Of
þurrt !
Þegar loftið er of þurrt sem er algengt
vandamál hér á landi , skreppur hljómbotninn saman
og strengirnir lækka sem leiðir af sér að hljóðfærið
lækkar í tónhæð. |
Sprunginn
hljómbotn
Með tímanum hefur ójafnt rakastig þau
áhrif að sprungur myndast í botninum sem leiðir til
kostnaðarsamra viðgerða á hljóðfærinu. |
Skemmdir á stemmistokk
|
Of
rakt !
Strengirnir í píanóinu eru festir í
stilliskrúfur sem ganga ofan í stemistokkinn. Við
of mikinn raka þrútnar stokkurinn og viðurinn skemmist. |
Of þurrt !
Við of mikinn þurrk gerist það að stokkurinn
rýrnar og stilliskrúfurnar hætta að halda stillingu.
|
Skemmdur
stemmistokkur
Hér sést skemmdur stemmistokkur sem tekinn
var úr píanói |
Skemmdir á strengjum
|
Ryðskemmdir
Raki veldur oft skemmdum á strengjum
sem verður til þess að þeir slitna frekar og hljóma
verr. |
Ryðgaðar stilliskrúfur
Eins og með strengina getur raki auðveldlega
skemmt stilliskrúfur sem eru úr járni. Gerist það er
þörf á kostnaðarsamri viðgerð. |