![]() |
![]() |
||
Þetta horn er aðalega til að hjálpa fólki til að setja inn upplýsingar um íslenskar kvikmyndir inn á imdb.com Ég reyndir fyrst að setja kredit lista inn sjálfur og komst fljótt að því að það væri þægilegra að hafa listann í tölvunni fyrst. Það var mjög óþægilegt að þurfa að spóla fram og til baka til að finna nafn á hinum og þessum. Og þegar ég byrjaði á því fannst mér bara sjálfsagt að leifa öðrum að hjálpa smá til. Ég er búinn með rúmlega 50 myndir, en það er tæplega helmingurinn. Ég mun auðvitað bæta þeim við eftir því sem ég næ fingrum mínum í þær. Það er mjög auðvelt að setja inn upplýsingar inn á imdb, en ég ætla að fara yfir það helsta sem hafa þarf í huga. Fari neðst á imdb síðu myndarinnar sem þið ætlið að uppfæra og þar munið þið finna takka sem á stendur "Update". Þar inni finnið þið alskonar hluti sem þið getið uppfært (nokkrar leiðbeiningar um það). Aðalega er verið að sækjast eftir leikurum, en þið getið í raun sett hvað sem er inn sem þið hafið upplýsingar um, þar á meðal allar upplýsingar sem er að vinna í kredit listunum (annað efni er td aldurstakmörk, lengd, frumsýningadagur...). Ég hvet ykkur til að skoða kredit listann vel og notfæra ykkur allt sem þar er að vinna. Eitt sem mig langar til að benda ykkur á er "credit order". Þetta er sú röð sem leikararnir settir í endacreditinu. Það er venjulega þegar nöfnin rúlla upp. Ef þau byrtast bara í byrjun þá er sú röð notuð. Svo er líka að passa sig á að setja nafn persónunar inn eins og það kemur fram í kredit listanum. Hafðu það bara á íslensku. Ef það stendur ekkert þá er best setja það nafn sem passar best eða skylja það eftir autt. Dæmi um hvað getur ruglað mann er ef margir eru kreditaðir saman, td "börn á leik", þá skaltu ekkert vera að setja það í eintölu, settu það frekar bara "börn á leik 1", "börn á leik 2" og svo koll af kolli eða bara sleppa tölunum. Mundu svo að skrá þig í imdb-is til að fleyri geti haft yfirsýn yfir hvað er verið að uppfæra. Og þá held ég að þú sért tilbúinn til að skoða kredit listana. (Ó)edli steinninn (hjá) mi.is 2005.10.20 |
|||