Síðast uppfærð 31.01.2004

0Efnisyfirlit 




Píanóþjónustan ehf. var stofnuð í ágúst 1998 af Sindra Heimissyni og
Stefáni Birkissyni. Markmið okkar er að veita píanóeigendum víðtæka
þjónustu , allt frá stillingum og upp í meiriháttar endurbyggingu á
píanóum og flyglum.

Við höfum báðir starfað við píanóstillingar og viðgerðir í mörg ár.
Sindri síðan 1986 og Stefán síðan 1987. Báðir lærðum við í Bandaríkjunum
hjá Emil Fries Piano Hospital and trainig centre í Vancouver í Washington
fylki.

Við þjónustum fjölda einstaklinga , stofnanir og skóla þar af um 15
tónlistarskóla víðs vegar um landið. Við útvegum ýmiskonar vara og
aukahluti í allar tegundir píanóa og flygla s.s. hljólabúnað og ábreiður.
Einnig viljum við vekja athygli á rakastillandi búnaði frá Damp Chaser sem
hefur gefist mjög vel við íslenskar aðstæður .




0Píanóstillingar


Pantið stillingu í símum : 894-0600 / 896-0222 eða með tölvupósti : Pantið hér