counter stats Gagnagrunnur Steingrims
   
 

Afþví enginn er búinn að spurja mig út í heimsreisuna, þá ákvað ég að búa til þetta horn. Vonandi byggir þetta upp smá spurningar. Vona líka að þið getið svarað nokkrum af mínum spurningum. Ef þú hefur eitthverja reynslu í þessum málum, eða þekkir eitthvern sem hefur hana, endilega hafðu samband.

Þetta horn er skipt í fimm hluti, síður sem ég mæli með til að undirbúa heimsreisu, það sem ég ætla að gera á undan heimsreisunni, það sem ég ætla að taka með mér í heimsreisuna, það sem ég ætla að gera í heimsreisunni og það sem ég ætla að gera eftir heimsreisuna.

Síður sem ég mæli með til að undirbúa heimsreisu!

World Healt Organation er með upplýsingar um sjúkdómahættur
Lonely Planet er líka mjög vinsæl ferðahandbók
Anna og Valgeir sem fóru í 6 mánaða ferð um suður Asíu og skrifuðu reglulega á bloggið
Mike frá Bandaríkjunum og hefur verið að ferðast um allann heim án þess að fljúga
Heleen og Gogo fóru í árs ferð um suður Ameríku og tileinkuðu síðunni þeirri ferð
World66 sem er með fullt af upplýsingum um öll lönd í heiminum, mjög gaglegt
Sendiráð Íslands í Peking
Utanríkisráðuneytið
Upplísingar um hvar þarf vegabréf og hvar ekki
Heilsugæslan
Svo er bara að leita á netinu, alveg fullt af upplýsingum út um allt!

Það sem ég ætla að gera á undan heimsreisunni!

Eitt það mikilvægasta er að safna pening, safna pening, spara, spara. Ég er í nokkuð góðri stöðu til þess, ég á ekki bíl, ég er í góðri leigu og á ekki börn. En það þýðir ekki að ég ætli ekki að spara. Þvert á móti, ég mun ekki eiga mér líf fyrr en ég er búinn að safna mér fyrir ferðinni. Vinna, borða, sofa, það verður lífsmynstrið. Ég kaupi bara mat í Bónus og enginn skyndibiti, ekkert nammi, ekkert gos. Ég set það í lífsnauðsin að fara minnstakosti einu sinni í bíó á mánuði, þannig að það verður í lágmarki (einu sinni í bíó). Og til að halda mér við það hef ég skráð niður þær myndir:

Apríl - Sin City (fór bara á Melinda and Melinda fyrir 400kr)
Maí - Hitchhiker's Guide (fór á Kindom of Heaven ókeypis og Hitchhiker fyrir 650kr)
Júní - Star Wars III
Júlí - Batman Begins
Ágúst - War of the Worlds
September - Little Trip to Heaven
Október - Charlie and the Chocolate Factory
Nóvember - V. for Vendetta
Desember - King Kong
2006 - óákveðið

Fleyri athriði sem ég ætla að gera fyrir utan að spara eru:
x Ákveða nokkurnvegin hvert ég ætla að fara
- Laga Nikon myndavélina mína
- Gera kosnaðaráætlun
- Hafa samband við sendiráðin
- Fara í skyndihjálparnámskeið
- Hætta öllum áskriftum (GSM o.s.frv.)
- Safna saman símanúmerum og fl. fyrir gistiheimili, flugvelli o.s.frv.
- Kaupa ferðatryggingu
- Finna út hvaða sjúkdóma ég get fengið á þeim stöðum sem ég er að fara á
- Sprauta mig gegn þeim sjúkdómum
- Komast að hvar ég þarf Visa
- Útvega mér Visa
- Fá alþjóðar bílpróf
- Tala við Póstinn
- Finna út hvar pakkarnir mínir eiga að fara
- Senda afrit af öllum pappírum á emailið mitt
-

Það sem ég ætla að taka með mér í heimsreisuna!

- Upptökuvélina mína
- Sjúkrakassi með lifum og fleyru
- Kaupa dollara
- Magaveski
- Sérhannaðir sandalar með innleggi
- Saumadót (get geymt það í sjúkrakassanum)
- Swiss hnífur
- Lítil reyknivél
- Rakara útbúnaður
- Nikon myndavélin mín
- Filmur í Nikon vélina mína
- DV upptökuvél
- Neðansjáfar útbúnaður fyrir DV vélina

Það sem ég ætla að gera í heimsreisunni!

Aðalathriðið er að vera alltaf með upptökuvélina við hendina og taka upp hvað sem er, sama hvort það sé að panta mat, tala við fólk eða ganga kínamúrinn.

Það eru nokkrir staðir sem ég er spenntari fyrir en aðrir. Missionið er að fara eitthvað á allar heimálfurnar, hér er smá umfjöllun um hvað ég ætla að gera á hverri og einni:

Norður Ameríka - Mexíka
Suður Ameríka - Frumskógar og rústir. Vera þar lengi á littlum pening
Evrópa - Byrja reisuna á Damörk. Skoða Róm(aveldið). Safna pening í London
Afríka - Píramítarnir. Kairó
Asía - Kínamúrinn. Skígjakljúfar í Japan
Eyjaálfan - Frumbyggjar í Ástralíu. Fídjí eyjar

- Áður en ég fer til Danmerkur, ætla ég að fara hringinn í kringum Ísland
- Það sem drepur mig ekki, gerir mig sterkari
- Sleppa mér alveg, borða allt, prufa allt
- Fara í fallhlífastökk og eða teyjustökk
- Skoða annahvorn endann á Kínamúrinum
- Fara inn í Píramída eða Svingsinn
- Fara í risa rennibraut
- Taka köfunarnámskeið

Það sem ég ætla að gera eftir heimsreisuna!

Ef ég kemst lifandi af þessari heimsreisu þá ætla ég að finna mér klippara sem getur sett allt efnið, sem ég hef tekið upp, í kristilega lengd. Ég nenni sko ekki að gera það sjálfur, en ég hef nokkrar hugmyndir um hvernig ég vil hafa það. Síðan fer bara eftir því hvort þetta sé áhugavert, hversu langt þetta er og hvers eðlis hvert ég fer með þetta. Það gæti verið að ég seti myndina í sýningu í kvikmyndahúsum, beint á spólu, video eða bara í kennslutíma.

Svo þegar ég verð kominn heim hef ég líka loksins tíma til að leita mér að kærustu.

steinninn (hjá) mi.is 2005.07.12